20 skrýtnir hlutir við Ísland

Jordi Pujolá (Þýðing: Karítas Hrundar Pálsdóttir)

Ég flutti til Íslands í júlí 2013 og síðan þá hef ég oft verið spurður hvernig upplifun það sé fyrir Spánverja að búa á Íslandi, þá sérstaklega hvort ég sakni ekki sólarinnar. Ég svara alltaf að ef ég hefði sóst eftir sólinni hefði ég haldið áfram að búa í Barcelona. Ég er hrifinn af Íslandi af því að það er öðruvísi. Samt sem áður eru nokkrir hlutir sem hafa haft áhrif á mig og mér þótt skrýtnir.

1.    Að sjá öll veðurtáknin á sama tíma í veðurfréttum (sól, rigningu, snjó…)

2.    Að sjá skóflu fyrir framan öll hús á veturna. Eftir fyrsta snjóinn vissi ég ástæðuna.

3.    Að sjá verslun lokaða „vegna veðurblíðu“.

4.    Að opna gluggann þegar kyndingin er orðin of mikill inni.

5.    Að Íslendingar klæðast aldrei þykkum eða áberandi útivistarfatnaði þrátt fyrir kuldann og myrkrið. Ef þú sérð einhvern ganga niður Laugaveginn þannig til fara eru það án efa túristar.

6.    Að fá símtal frá lækninum sem vill bara athuga hvort lyfin þín virki ekki sem skyldi.

7.    Að bæta við vini á Facebook og sjá að þið eigið sameiginlega vini nú þegar.

8.    Að ein vefsíða geymir upplýsingar um alla þjóðina og þess vegna þarf ekki að koma með skjöl til að sýna fram á hver þú ert.

9.    Að Íslendingar hafa þá þráhyggju að eiga alltaf uppáhalds staði í bænum sem selja bestu pylsurnar, ísinn og kaffið.

10. Að geta borgað einn sleikjó með kreditkorti.

11. Að hádegisverðurinn er óformlegur og fólk þarf ekki að hitta fullt af fólki á þessum tíma dagsins.

12. Að það er nóg að segja „komdu sæl/l“ þegar þú hittir nýtt fólk og að þurfa ekki að kyssa neinn eins og á Spáni.

13. Að sokkar eru jafn mikilvægir og skór. Jafnvel hjá tannlækninum fer fólk úr skónum.

14. Að þú þurfir ekki að sýna afgreiðslufólki í matarbúðum ofan í bakpokann þinn til að sýna fram á að þú sért ekki að stela eins og þarf að gera á Spáni. Þegar ég gerði það í fyrsta skipti á Íslandi horfði unglingurinn sem afgreiddi mig í Bónus á mig eins og ég væri klikkaður.

15. Að kaupa fullt af bjór í matarbúðinni og taka eftir því þegar heim er komið að hann er áfengislaus. Bjór var bannaður á Íslandi á árunum 1915-1989! Það útskýrir drykkjusýkina.

16. Að Íslendingar eru sérlega þjóðræknir og hvetja alltaf landa sína, jafnvel í karókí keppni.

17. Að hafa bara eitt mjólkurvörumerki.

18. Að Íslendingar ganga frjálslega á grasinu. Það er bannað í spænskum almenningsgörðum.

19.  Að fara í búð til að skipta einhverri vöru og vera ekki spurður um kvittun.

 20. Að fylgjast með Íslendingum tala í símann. Fyrst hélt ég að einhver ósköp hefðu komið fyrir.

LífstíllJordi Pujolá